Verið velkomin. Frú Lauga er hverfisverzlun í Laugarnesi sem býður upp á ferskar matvörur frá íslenskum bændum um land allt. Gæði og rekjanleiki eru hennar ær og kýr. Hún flytur líka inn ljúffengt góðgæti frá bændum á meginlandinu — aðallega Ítalíu. Njótið vel!

Frúin bloggar

Frú Lauga í Vínbúðunum

Við tókum saman lista af vínunum okkar sem fást í Vínbúðunum. Flest þeirra fást eingöngu í Vínbúðunum Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi svo mælum með að fólk kíki í einhverja þeirra. Sum vínin eru merkt gamla miðanum okkar – vinogmatur.is.

Hér má prenta út og taka listann með í næstu vínbúðarferð

Lífræna rauðvínið Morgon Biovitis frá Michel Guignier er í sérstöku uppáhaldi hjá okkur

Hvítvín:

Hubert Sandhofer Gelber Muskateller (Austurríki) – 2.390 kr
Ca Rugate Soave San Michele (Ítalía) – 2.597 kr
Valdibella Ariddu (Sikiley) – 2.689 kr LÍFRÆNT
Hubert Sandhofer Gruner Veltliner (Austurríki) – 2.689 kr
Mas de Gourgonnier (Frakkland) – 2.980 kr LÍFRÆNT
Ca Rugate Soave Monte Fiorentine (Ítalía) – 3.690 kr
Vincent Girardin Meursault Clos de Charrons (Frakkland) – 6.187 kr

Rauðvín:
Valdibella Jaki (Sikiley) – 2.689 kr LÍFRÆNT
Combe Blanche Clos Causse Minervois Liviniere (Frakkland) – 2.980 kr
Michel Guignier Brouilly (Frakkland) – 2.980 kr
Mas de Gourgonnier (Frakkland) – 2.990 kr LÍFRÆNT
Hubert Sandhofer St. Laurent Eisner (Austurríki) – 3.190 kr
Michel Guignier Morgon Biovitis (Frakkland) – 3.590 kr LÍFRÆNT
Bisceglia Aglianico del Vulture Riserva (Ítalía) – 3.990 kr
Castello di Querceto Chianti Classico Riserva (Ítalía) – 4.290 kr
Saint Cosme Saint-Joseph (Frakkland) – 4.798 kr
La Spinetta PIN (Ítalía) – 6.877 kr
Ca Rugate Amarone (Ítalía) – 9.290 kr

Rósavín:

Valdibella Dhyana (Sikiley) – 2.689 kr LÍFRÆNT
Hubert Sandhofer Rosando (Austurríki) – 2.689 kr
Mas de Gourgonnier (Frakkland) – 2.889 kr LÍFRÆNT

Freyðandi vín:

Lini Labrusca Lambrusco Bianco (Ítalía) – 2.289 kr
Lini Labrusca Lambrusco Rosato (Ítalía) – 2.289 kr
Castello di Querceto Francois 1er (Ítalía) – 3.790 kr
Ca Rugate Fulvio Beo (Ítalía) – 4.490 kr
Lini 910 Metodo Classico (Ítalía) – 4.591 kr

Sætvín:

Castello di Querceto Vin Santo (Ítalía) – 3.720 kr

 

Ritaði Arnar Tagged |

Slow Food heimsækir bændurna í Valdibella

Það var ást við fyrstu sín.

Á þessum orðum hefst grein Giancarlo Cariglio og Francesco Abate  um vínin frá Valdibella.

Ný saga, og gömul.

Slow Food blaðamennirnir voru staddir í þvögu á ítalskri vínsýningu. Víngerðarkonan sem þeir ætluðu að hitta reyndist önnum kafin og frekar en grípa í tómt teygðu þeir sig í glas á næsta borði, hjá víngerð sem þeir höfðu aldrei séð né heyrt af áður.

Gat það verið? Höfðu þeir fundið falinn fjársjóð, perlu sem enginn vissi af?

Þeir verða svo hugfangnir af vínunum að innan fárra vikna eru þeir mættir til Sikileyjar á þröskuldinn hjá Valdibella bændunum til að rannsaka uppruna vínanna betur. Þeir hitta fyrir Marcello Solano sem útskýrir fyrir þeim hvernig bændurnir 10 sem mynda Valdibella samyrkjubýlið byrjuðu flestir vegna þess að þeir erfðu löndin af foreldrum sínum og þeim bæri skylda að rækta landið af virðingi. Þeir eru allir með lífræna ræktun og vínframleiðslan öll sem náttúrulegust (sum vín eru án viðbætts súlfats, sem er sjaldgæft). Þeir stuðla líka að fjölbreyttum gróðri og dýralífi til að styrkja lífríki náttúrunnar. Valdibella víngerðin er þar fyrir utan “pizzofree” sem er nýtt hugtak yfir fyrirtæki á Sikiley án tenglsa við hina alræmdu mafíu. Þeir hafa líka ráðið vandræðaunglinga til að stuðla að bættu samfélagi.

Eftir vínsmakk í víngerðinni eru félagarnir enn og aftur slegnir yfir gæðum vínanna. Ekki gæðum sem byggjast á flækni, þyngd og stjörnulátum heldur vegna þess hversu uppruni þeirra er skír, hversu vínin eru hrein og bein án stæla, gefandi, drekkjanleg og ilmrík.

“Ohhh! Ahhh!” er að finna í lýsingu Slow Food blaðamannana.

Þeir eru líka slegnir yfir verðinu og gefa Valdibella á endanum svokallaða MONETA sem er einstök viðurkenning fyrir að vera svona góður fulltrúi síns svæðis á svo sanngjörnu verði.

Þeir kveðja Valdibella, ástfagnir upp fyrir haus.

Greininina má lesa í heild sinni hér

Við höfum flutt inn þrjú lífræn vín frá Valdibella, rauðvínið Jaki, hvítvínið Ariddu og rósavínið Dhyana.

Þau hafa líka fengið frábæra dóma í Gestgjafanum, Jaki og Dhyana valin Vín mánaðarins (meira á bloggi Frúarinnar).

Ritaði Arnar Tagged , , , , , |

Heimalagað pasta með spínati

Svona gerum við er við hengjum okkar pasta.

Fyrsta pastalögun hússins úr Marino hveiti tókst mjög vel. Við notuðum eingöngu harða hveitið með virðulega nafnið, Sfarinato Grano Duro “Senatore Capelli”, en senatör sérnefnið vísar í ákveðið yrki sem Marino feðgar nota í þetta hveiti.

Við ákváðum að nota eingöngu egg með hveitinu, ekkert vatn. Nákvæmar mælingar fóru ekki fram í upphafi en okkur reiknaðist sem svo að þyngd eggjanna hafi verið u.þ.b. 250 grömm (við notuðum 6 lítil landnámshænuegg frá Húsatóftum) og hveitið sjálft um 350 grömm. Aðalatriðið er að finna að deigið sé vel þétt og hnoða síðan vel og lengi þar til mýkist og verður meðfærilegra.

Við bjuggum til tagliatelle úr deiginu og fórum niður í næst fínustu stillingu á pastagerðarvélinni. Það reyndist vera mjög passleg þykkt því pastað var mjög létt og fínlegt en hélt þó vel saman.

Suðutími var eldsnöggur, líklegast ekki meira en svona 5 mínútur, og við settum vænan slurk af Reykjanessalti í pottinn.

Niðurstaðan var ánægjuleg, án efa best heppnaða, heimagerða pastað sem við höfum gert. Það hefði nægt að setja ólífuolíu og hvítlauk á pastað og leyfa því að njóta sín nánast eitt og sér en við gerðum einfalda pastasósu þar sem við vorum nýbúin að fá girnilegt, lífrænt spínat frá Ingólfi og Sigrúnu á Engi.

Bræddum góðan slatta af smjöri á pönnu og kreistum heilan hvítlauk út á (u.þ.b. 8-10 rif) ásamt fínsaxaðri steinselju frá Hveratúni. Eftir nokkrar mínútur settum við innihald úr tveimur spínatpokum frá Engi á pönnuna og leyfðum að taka sig í 3-4 mínútur á pönnunni. Ekki flóknara en svo fyrir utan smávegis salt (og ólífuolía ekki langt undan).

Einfaldur réttur þar sem bæði pasta og spínat fær að njóta sín.

 

Ritaði Arnar Tagged , , , , , |

Farro smákökur með súkkulaðibitum

Þessar smákökur voru svo góðar að þær kláruðust áður en ljósmyndarinn náði að taka mynd.

Við notum fínt Farro spelt frá Marino, lífrænt og steinmalað.

110 g smjör
80 g sykur (eða hunang)
80 g púðursykur
1 brúnegg
1 tsk vanilludropar
150 g ljóst Farro
60 g haframjöl
1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
100 g 70% Amedei súkkulaði saxað
50 g hvítt Amedei súkkulaði saxað

Smjör og sykur þeytt saman, vanilludropum og eggi blandað saman við. Þurrefni blandað saman og bætt út í. Súkkulaði blandað varlega saman við. Bakað við 175°C í uþb. 12 mínútur.

Ritaði Arnar Tagged , , , , , , |

Marino er mættur til starfa

Lífræna, steinmalaða mjölið frá Marino er mætt í Frú Laugu ásamt baununum.

Það verður að viðurkennast að frúin er svolítið spennt yfir þessari nýjung.

Eitt er víst, það verður bakað næstu daga.

BURATTO mjúkt, fínmalað  alhliða hveiti – 590 kr.
BURATTO 5kg – 2790 kr.
MACINA grófmalað hveiti – 640 kr.
SFARINATA GRANO DURO hart hveiti –  690 kr.
FARRO BIANCO fínmalað spelt – 980 kr.
FARRO BIANCO 5kg – 4390 kr.
FARRO INTERO grófmalað spelt -980 kr.
FARRO CHICCI heilt spelt –  790 kr.
SEGALE fínmalað rúgmjöl – 790 kr.
GRUSERA grófmalað maísmjöl – 840 kr.
LENTICCHIE linsubaunir – 690 kr. (400g)
CECI kjúklingabaunir – 840 kr.
FAGGIOLI BORLOTTI rauðar baunir – 1490 kr.
FAGGIOLI CANNELLINI hvítar baunir – 1490 kr.

Ritaði Arnar Tagged , , , , , |

Dagur í lífi frúarinnar

Alísa Kalyanova heimsótti Frú Laugu ekki alls fyrir löngu og myndaði dag í lífi frúarinnar.

Bændamarkaður frú Laugu from Alísa Kalyanova on Vimeo.

Ritaði Arnar Tagged , |

Eplin hennar Catarinu

Við erum þakklát fyrir að hafa fundið eplin hennar Catarinu. Ekki bara vegna þess að þau er yndislega bragðgóð og lífræn heldur líka vegna þess að það var hún sem benti okkur á Valdibella á Sikiley, lífrænu bændurna sem hafa fært Frú Laugu möndlur, vín, ólífuolíu að ógleymdum fersku ávöxtunum.

Eplauppskeran síðasta sumar var heldur minni en vanalega svo við sömdum um að fá bara eina eplasendingu frá Catarinu þetta árið. Hún kaus að geyma það þar til nú svo eplin hafa legið hjá henni í dvala síðan í haust, orðið þéttari og sætari á meðan.

Eftir helgina er von á eplasendingunni. Sömu þrjár tegundir verða um borð og síðast, Golden Delicious, Red Delicious Stark og Royal Gala auk þess sem við fáum smávegis af fjórðu sortinni, Jonagold.

Við heimsóttum Catarinu síðasta haust (sjá myndir). Hún býr í frægum epladal, Val di Non, í sjálfum Ölpunum. Þar blása svalir vindar um brattar hlíðar sem henta vel til eplaræktar. Þrátt fyrir frægð epladalsins, sögu og háan gæðastimpil er Catarina eini lífræni eplabóndinn á svæðinu. Hún berst fyrir tilvist sinni og leggur mikið á sig til að viðhalda sjálfstæði sínu og hugsjónum.

Ritaði Arnar Tagged , , , |

Ný sending frá Sikiley

Ritaði Arnar

Nýtt, kjötmikið fréttabréf

Þriðja fréttabréf frúarinnar 2012 var að líta dagsins ljós.

Til umfjöllunar kjöt og meira kjöt, jöklanaut frá Árbæ og alikálfur frá Dalsseli.

Ritaði Arnar

Lífrænt, steinmalað korn frá Ítalíu

Frá því haustið 2010 hefur Frú Lauga gengið með það í maganum að flytja inn gott, ítalskt hveiti eða allt frá því hún rakst á Marino fjölskylduna og hveitið hennar á Salone del Gusto í Tórínó (sjá myndir).

Marino fjölskyldan hefur malað hveiti og annað korn í þrjá ættliði. Kornið er steinmalað og allt hráefnið lífrænt svo hollustueiginleikar verði sem best varðveittir í afurðinni. Ekki spillir fyrir að framleiðslan er knúin af sólarorku framleiddri á staðnum. Þau búa við hliðina á myllunni í bænum Cossano Belbo á Langhe svæðinu í Piemonte héraði.

Fyrsta sending frá Mulino Marino kemur um miðjan mars. Um borð er venjulegt hveiti, heilhveiti, semolina, farro (spelt), rúgmjöl auk þess sem við fáum heilar kjúklingabaunir, linsubaunir og rauðar og hvítar faggioli baunir.

Ritaði Arnar
Nýjar vörur daglega

Epli frá Englandi, 590 kr/kg

Lífrænar blóðappelsínur frá Sikiley, 590 kr/kg

Holdanautasteikur frá Sogni í Kjós, 3980 kr/kg

Romaine salat frá Ösp í Biskupstungu, 240 kr/stk

Grænkál frá Engi, 390 kr/stk

Hreinn eplasafi frá Chegworth Valley á Englandi, 640 kr/l

Sveitaskyr frá Erpsstöðum, 490 kr/dollan

Aðföng

Vínin með matnum

Lífrænu vínin frá Valdibella fá fallega umfjöllun í Gestgjaf-anum.

Rósavínið Dhyana og rauðvínið Jaki fá fjögur glös af fimm og nafnbótina Vín mánaðarins. Hvítvínið Ariddu fær þrjú og hálft glas.

Í stuttu máli er það hreinleiki vínanna m.a. sem fangar vínsmakkara tímaritsins.

Hrein, vegna þess að þau eru framleidd af virðingu fyrir náttúrunni og laus við ónáttúrlega ofurmeðhöndlun úti á vínekru sem inni í víngerð.

Meira um vínin með matnum hjá Víni & mat

Fólkið á bak við frúnna

Frú Lauga heitir ekki bara eftir Laugarneshverfi.

Lauga er sameiginlegt gælunafn þriggja amma okkar eigendanna, Arnars og Rakelar — Sigurlaug, Áslaug og Guðlaug, og sú fjórða hét Elín.

Meira um frú Laugu